Grillaður lax með engifer, hvítlauk og kóríander
- 1 flak lax (villtur bestur)
- 2 msk. Extra virgin ólífuolía
- 2 tsk. sítrónusafi
- 2 hvítlauksrif
- 5 cm. bútur engifer
- 2 msk. saxaður ferskur kóríander
- Salt og pipar að smekk (sem minnst samt :o)
Leggið fiskflakið í eldfast mót.
Pressið hvítlaukinn og saxið engiferið smátt.
Blandið saman ólífuolíu, sítrónusafa, kóríander, engifer og hvítlauk.
Dreifið blöndunni yfir fiskflakið.
Kryddið með salt og pipar.
Grillið í ofni í ca. 10 mínútur. (fer eftir þykkt flaksins og hversu öflugur ofninn er)
Uppskrift: Inga Kristjánsdóttir
No Comment