Kjúklingasumarsalat
Í tilefni af sumarkomunni í Reykjavík kemur hér uppskrift af ljúffengu sumarsalati frá henni Sigrúnu á cafesigrun.com. Það er svo gott að borða mikið af léttu og gómsætu salati á sumrin og við getum farið að æfa okkur, þó að hitatölurnar á landinu séu nú ekki spennandi ennþá.
Kjúklingasumarsalat
Fyrir 2
- 250 gr grilluð (helst) eða steikt kjúklingabringa, rifin í strimla. Skinnið ekki notað
- 1/2 dl ristaðar möndlur (þurristað á heitri pönnu í 5-10 mínútur)
- 1 1/2 dl sellerí í sneiðum
- 1 msk appelsínusafi
- 1 dl hrein, fitusnauð jógúrt
- 1/2 dl rúsínur
- 1/2 dl aprikósur, sneiddar smátt
- 1/2 tsk hvítlauksduft frá Pottagöldrum eða 1 marið hvítlauksrif
- 1/2 tsk svartur pipar
- 1/2 tsk ground ginger (duft)
- Jöklasalat
- 2 tómatar, í sneiðum
Aðferð:
Blandið saman kjúklingi, sellerí, apríkósum og möndlum í stóra skál.
Bætið afganginum af hráefninu út í og blandið vel saman.
Kælið í ísskáp.
Setjið salatblöð og tómatsneiðar á 2 diska og síðan kjúklingasalatið þar ofan á.
Ég hef stundum haft mango-karrísósu með þessu salati og það passar bara fínt:
Mangó-karrísósa
- 2 msk mangomauk (mango chutney)
- 1 tsk karrí
- 2 tsk tamarísósa
- 1 dós hrein jógúrt, fitulaus
Hrærið saman og berið fram í sér skál með salatinu
Gott með grófu brauði eða jafnvel grófu snittubrauði
Uppskrift: Sigrún Þorsteinsdóttir
No Comment