Skýjaðir blómavasar
Til þess að þrífa skýjaða blómavasa er gott að fylla þá af vatni og setja fullt af salti í vatnið, þá verða þeir aftur glærir og fínir.
Ræstikrem
Blanda matarsóda við örlítið vatn og þú ert komin með lang, lang besta ræstikremið! Hann er líka lyktareyðandi.
Vond lykt
Edik er sótthreinsandi og líka lyktareyðandi. Blandaðu borðediki við vatn og strjúktu innan úr skáp með vondri lykt, eða helltu því í dýnu sem lyktar illa, leggðu illa lyktandi þvott í bleyti með ediki eða settu smá edik í þvottavélina.
Að hreinsa örbylgjuofninn
Setjið skál með vatni og sítrónu, sem skorin er í tvennt, inn í ofninn. Stillið á hæðsta hita í ca. 5 mínútur. Gufan losar öll óhreinindi og hægt er að þurrka auðveldlega úr ofninum með þurrum klút. Fyrir utan það að ofninn lyktar betur.
Að þrífa bakvið ofna
Það getur oft verið ansi erfitt að þrífa á bakvið miðstöðvarofnana. Bleytið viskastykki eða tusku og leggið það á gólfið fyrir neðan ofninn. Sækið hárblásarann og blásið rykinu á bakvið ofninn, niður, það fellur á blauta stykkið undir ofninum.
Lím
– Sítrónudropar eru góðir til að ná upp límmiðaklessum, þeir eru líka góðir til að ná límklessum úr hári þegar verið er að föndra.
Að pússa silfrið
-Gott ráð til að pússa silfrið. Sjóðið vatn og hellið í bala, setjið álpappírsræmur út í og smá slatta af matarsóda og leggið síðan silfrið í. -Tannkrem er líka gott á silfur, nudda og skola svo með köldu vatni.
Perlur og annað smádót
Ef börnin eru að perla og perlurnar fara út um allt þá er bara að skella nælonsokk á ryksuguna og sjúga perlurnar upp, taka sokkinn og tæma í perluboxið. Sparar bakið 😉
Vaxlitakrot
Fengum fyrir nokkru sent gott ráð við veggjakroti – takk fyrir góða ábendingu Sæl og blessuð Mig langar að deila með ykkur smá ráði um heimilisþrif. Við sem erum með börn á heimilinu höfum lent í því að barnið ákveði að skreyta veggi með vaxlitum og svo hefur maður reynt …