Hvernig nær maður lími og vaxi úr fötum?
Ef lím eða vax fer í fötin, setjið dagblað yfir blettinn og straujið yfir á lágum hita, nær öllu úr.
Hvítir sokkar
Hvítir sokkar verða alveg skjannahvítir ef þeir eru soðnir í vatni með nokkrum sítrónusneiðum. Sítrónan er náttúrulegt bleikiefni.
Að ná tyggjó úr fatnaði
Besta ráðið til að ná tyggigúmíi úr flík, er að frysta flíkina og þá molnar tyggjóið auðveldlega úr. Ef að aðstæður eru þannig að ekki er hægt að koma því við að setja flíkina í frysti, þá er gott að setja klaka á tyggjóklessuna, en við það harðnar það aðeins …
Ýmsir matarblettir
Oft lendum við í því að fá einhverja matarbletti á okkur og erum ekki heima við. Gott er þá að nota einnota blautþurrkur til að ná blettunum úr. En ef þú ert ekki með blautþurrkur í veskinu þá er ef til vill besta lausnin að bregða sér á snyrtinguna og …
Hvernig nær maður blekblettum úr fatnaði?
Til að losna við blekbletti úr flíkum þá er best að hella mjólk í skál og láta blettinn liggja ofan í skálinni helst yfir nótt. Síðan er flíkin þvegin og viti menn bletturinn er horfinn. Einnig er hægt að dreypa nokkrum dropum af óþynntum salmíakspíritus á blettinn og hann soginn …
Hvernig losnar maður við kaffibletti?
Oft er hægt að fjarlægja kaffiblett ef hann er skolaður strax með því að halda flíkinni undir vatnskrananum og láta vatn renna á blettinn og nudda um leið. Muna að nota kalt vatn, því að hitinn getur fest blettinn í flíkinni.
Að ná sósublettum úr fatnaði
Sinnep Farið í næstu matvöruverslun og kaupið glycerine, berið það á blettinn og látið liggja í smá stund og þvoið síðan. Tómatssósa Látið vatn renna á blettinn innan frá, á flíkinni, ekki á blettinn sjálfan heldur á röngunni. Þegar að tómatsósan er að mestu farin úr, nuddið þá blettinn …
Hvernig er best að ná snyrtivörum úr fatnaði?
Varalitir og augnskuggar Gott ráð til að ná varalit úr flík sama hvort efnið er silki eða bómull. Setjið olíulausan make up remover í bómullarhnoðra og dumpið létt á flíkina. Maskari Nuddið blettinn varlega með bensíni. Ef að bletturinn fer ekki, má prófa að væta hann með uppþvottalegi. Best er ef …
Að ná grasgrænu úr fötum
-Til að ná grasgrænu úr fötum, hellið nýmjólk á blettinn og svo uppþvottalegi og nuddið saman.
Fitublettir í fatnaði
Talcum púður er mjög gott til að ná fitu úr fötum. En það virkar þó aðeins ef að bletturinn er ennþá blautur og nýr. Hellið talcumi á blettinn og látið það sjúga í sig mestu fituna. Hreinsið svo upp úr heitu vatni og jafnvel gott að nota smá handsápu. Svo …